Bandarískur þjálfari í heimsókn
29. maí 2009
Eftir mikla vinnu hjá formanni HMR þá hefur tekist að fá hingað frábæran bandarískan þjálfara í heimsókn. Sá heitir Patrick Pace og mun hann dvelja hér á landi í þrjár vikur. Hann mun hafa nóg fyrir stafni þessar vikur því búið að að skipuleggja þétta dagskrá handa honum, sjá nánar hér. Verður hann með æfingar fyrir okkur og er því mælt með að sem flestir sjái sér fært um að mæta meðan hann er hér, þetta er einstakt tækifæri sem við hafnaboltaáhugamenn höfum fengið hér. Sjáumst á æfingum í allt sumar!
Breyttur æfingartími, sunnudaginn, 24.maí 2009
23. maí 2009
Hafnaboltaæfing í dag, sunnudaginn, 24.maí, verður frá kl.12-14. Hittumst við Tennisvellir Víkings.
kveðja, Raj s.820-0825
Nýjar myndir
20. ágú. 2008
Nú eru komnar inn nýjar myndir frá æfingum okkar í ágúst, hægt er að sjá myndirnar hérna. Það var hún Sirrý sem tók þessar frábæru myndir. Mætingar í ágúst hafa ekki verið alveg upp á sitt besta, en nú þegar Raj er kominn heim aftur úr fríinu sínu þá vonumst við til að allir spíti í lófana og mæti á æfingar. Minnum á að æfingin í dag, 21/8, verður á milli 18:00 -20:00. ÆFING FELD NIÐUR Í DAG (21/8) VEGNA VEÐURS
Endurbætt heimasíða hjá Hafnabolti.com
18. ágú. 2008
Nú hefur Hafnabolti.com fengið andlitslyftingu, glænýtt útlit á heimasíðu okkar hefur nú litið dagsins ljós. Það er Vefhetjan sem á heiðurinn af nýja útlitinu. Með tilkomu nýju síðunnar þá vonumst við til að setja aukakraft í síðuna og reyna að bæta við efni hér höfðar til allra hafna- og mjúkboltaáhugamanna á íslandi. Hér til hægri er hægt að skrá sig á póstlista okkar, hvetjum við alla til að gera það, það er ætlun okkar að senda út öðru hvoru fréttabréf með helstu fréttum og öðru skemmtilegu úr heimi hafna- og mjúkbolta hér á landi. Ef þú lumar á góðri hugmynd eða vilt koma einhverju áleiðis í fréttabréfið þá er þér velkomið að senda á okkur línu, getur gert það hér.
Íslenska World Series, HMR vs. Aðföng, Leikur 2
16. júl. 2008
17. júlí 2008 var annar leikur í hinni íslensku World Series 2008, aftur var spilað á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. HMR rétt svo vann Aðföng í kvöld, 31:29. HMR byrjaði með miklum krafti og var yfir 14:0 eftir aðeins 2 lotur en Aðföng kláraði 3. lotu með 10 stig sem bilið í 14:10. HMR var yfir allan tíman en leikurinn var mjög jafnt eftir 3. lotuna. Aðföng var undir 31:26 í enda 9.lotu en þeir náðu að skora 3 stig sem gerði stöðuna 31:29 og áttu möguleika að jafna leikinn en HMR greip síðast boltan hjá Aðföngum og þar með var draumur Aðfanga úti. Aðföng mætti með þrjá nýja leikmenn og HMR með fjórar, gaman að sjá nýtt fólk í þessari skemmtilegri íþrótt.
Íslenska World Series, HMR vs. Aðföng, Leikur 1
07. júl. 2008
Þann 8. júlí 2008 fór framm fyrsti leikurinn í hinu Íslenska World Series. Leikurinn var á milli HMR og Aðföng, og fór leikurinn fram á Víðistaðatúni, Hafnarfirði. Það er skemmst frá því að segja að HMR slapp naumlega með sigurinn, 31:30. Úrslitin réðust ekki fyrr en hann Þráinn sló hann Sigmar inn fyrir sigurstigið í enda 9. lotu.
Kynning í Brúarskóla
31. maí 2007
Fjalar Þorgeirsson tók vel á móti mér þegar ég kom við Brúarskóli. Sex strákar voru í miklu stuði þegar við ákveddum að fara í "home run" leik. Hérna má sjá myndur úr heimsókninni.
Kynning í Fossvogsskóla
07. maí 2007
Fyrsta "PLAY BALL!" grunnskólakynningin fór fram í Fossvogsskóla í dag. Davíð Ólafsson, íþróttakennari Fossvogsskóla, tók vel á móti hugmynd um að halda viku kynningu fyrir alla krakka Fossvogsskóla. Leikið var á túninu við skólann og eftir stuttar leiðbeiningar um hanska notkun og tækni við að kasta bolta, var æft 15-20 mín. að kasta á milli. Síðan voru útskýrðar einfaldar handbolta reglur og leikið það sem eftir var af tímanum. Hér má sjá myndband frá kynningunni. Davíð Örvar, íþróttakennari í Fossvogskóla hafði þetta að segja um kynninguna: "Undanfarnar vikur hefur Raj Bonifacius tennisþjálfari hjá Víking og íslenska landsliðinu verið með kynningu á Baseball hérna í Fossvogsskóla. Höfum við fengið að læra undirstöðuatriðin og reglurnar í Baseball og einnig hafa krakkarnir spilað mjög mikið í bæði frímínútum og leikfimistímum. Baseball er frekar einfaldur leikur, svipaður og kýló sem flestallir krakkar á Íslandi kannast við, og fá krakkarnir fjölbreytta æfingu og góða hreyfingu við að stunda Baseball. Fínhreyfingar(slá) og grófhreyfingar(kasta og grípa) þjálfast í Baseball og einnig snerpa og skjót hugsun, það þarf nefnilega klókindi að spila Baseball.Útbúnaðurinn er einfaldur, kylfa,hanski,tennisbolti eða plastkúla,hringir til að búa til hafnir eða gúmmímottur, einnig er til standur til að setja boltann á, auðveldar yngri krökkum að slá. Leikreglur eru einfaldar eins og áður sagði og því tel ég Baseball vera góð viðbót við íþróttagreinar á Íslandi og tel hana henta vel í kennslu jafnt hjá yngri bekkjum og eldri. Það geta allir verið með, hægt er að æfa bara köst og grípa, ein vinsælasta afþreying í Bandaríkjunum;(play catch), og síðan er að sjálfsögðu leikurinn sjálfur. Það þarf ekki stórt svæði, 20x20 metra völl og hægt að stunda inni jafnt sem úti."- Davíð Örvar Ólafsson íþróttakennari í Fossvogsskóla

